Hestasport - Activity Tours









Velkomin í Litbolta Ævintýraferða!


Algengar spurningar

  • Geta allir tekið þátt í litbolta?
  • Eina takmörkunin er aldurinn. Til öryggis, þá verður þú að hafa náð 15 ára aldri. Bæði konur og karlar geta tekið þátt í leiknum. Allt sem þarf, er viðunandi öryggisbúnaður sem við leggjum til. Og góða skapið auðvitað!

  • Er litbolti Hestasport/Ævintýraferða hættulegur?

  • Nei. Reglur leiksins eru skrifaðar niður. Þær eru útskýrðar og sýndar í 10 mín. áður en hver leikur hefst. Starfsfólk vallarins er fullþjálfað og alls er gætt til þess að tryggja öryggi þátttakenda. Ævintýraferðir eru með sérstaka tryggingu ...(specialized public liability cover ) Skipuleggjendur ferða geta fengið að kynna sér áhættumat sem gert hefur verið fyrir fyrirtækið. Merkjarar okkar eru takmarkaðir innan viðurkenndra og þekktra öryggistakmarkanna. Samt sem áður, þarf alltaf að hafa almenna skynsemi að leiðarljósi. Merking af stuttu færi getur valdið óþægindum og í sumum tilvikum marblettum og meiðslum á óvörðum stöðum þar sem húðin er ber. Þess vegna er alltaf leikið með hjálm sem einnig nær yfir andlitssvæði.

  • Lágmarksaldur?

  • 15 ár

  • Hvenær byrjar hver leikur?

  • Dagurinn okkar byrjar kl. 9:00 fyrir hádegi og hver leikur stendur yfir í 2 tíma.

  • Hverju ætti ég að klæðast þegar ég spila litbolta?

  • Eins og allir litbolta vellir, þá er litboltavöllur Hestasports/Ævintýraferða utandyra og mátulega grófur. Því sterkari sem fótabúnaðurinn er því betra. Það er ráðlegt að skipta um fatnað og skó áður en leikur hefst og reyna að hylja alla bera húð.

  • Er einhver aukakostnaður eða eitthvað annað sem getur verið íþyngjandi fyrir þátttakendur en þeim hefur ekki verið skýrt frá?

  • Nei, þú þarft ekki að greiða aukalega fyrir þann búnað sem við leggjum til, eða þann búnað sem þarf, til að geta spilað litbolta. 100 litboltakúlur innifaldar í verðinu. Allir sem taka þátt í litbolta á vegum Hestasports/Ævintýraferða, verða að skrifa undir samkomulag um að fara eftir leikreglum. Í því felst, að þátttakendur skuldbinda sig til að fylgja nákvæmum leik- og öryggisreglum, sem þeim eru kynntar sérstaklega áður en hver leikur hefst.