|
|
|
|
Velkomin í Litbolta Ævintýraferða!
SAMÞYKKI
Vinsamlegast athugið,
til að tryggja öryggi á litbolta vellinum, þarf að prenta út
eyðublað hér fyrir neðan. Fylla það út og koma með á völlinn...
Klikkaðu hér til að prenta út PDF skjal
ÖRYGGIS
Litbolti er merkilega örugg íþrótt svo lengi sem öryggisreglum er fylgt.
Skýrslur tryggingafélaga hafa sýnt að litbolti er öruggari en golf, hlaup, tennis,
hjólreiðar, sund og margar aðrar íþróttir sem eru kenndar í skólunum.
Það er mikilvægt að hafa dómara á vellinum, sem framfylgir öryggisreglum.
Engin líkamleg snerting er leyfð og ljótt orðbragð ekki liðið. Leikmenn geta
átt það á hættu að vera reknir út af vellinum ef þeir brjóta öryggisreglur.
Leikmenn þurfa alltaf að bera sérstakar litboltagrímur sem verja augu þeirra,
eyru og andlit. Leikmenn þurfa að bera grímuna allan þann tíma sem leikur stendur
yfir og eins alltaf þegar þeir eru á því svæði, sem skot eru leyfð.
Algengustu slysin í litbolta eru einstaka snúinn ökli, skrámur og marblettir.
Það er svipað og allir geta fengið í fjörugum leik, jafnt innandyra sem utan.
Slysatíðni er 0,31 á hvern 1000 í litbolta
Slysatíðni er 0,50 á hvern 1000 í keilu
Slysatíðni er 1,13 á hvern 1000 í Golfi.
| |