Gistiparadís í Skagafirði - sumarhús fyrir
ferðafólk
Í Varmahlíð, í hjarta Skagafjarðar bjóðum við
upp á gistingu í sumarhúsum / heilsárshúsum
af mismunandi gerðum allt frá 35 fermetra "stúdío"
húsum upp í 50 fermetra hús með herbergjum og
svefnlofti.
Boðið er upp á gistingu bæði í uppbúnum
rúmum og svefnpokapláss eina nótt eða fleiri í
senn. Öll húsin eru með eldunaraðstöðu.
Húsin standa í hring um upphlaðinn heitan pott sem myndar
einskonar torg í miðri húsþyrpingunni.
Baðaðstaðan í pottinum gefur möguleika á
slökun og hvíld fyrir gesti þorpsins eftir
viðburðaríkan og spennandi dag í Skagafirði.
Varmahlíð - þjónustumiðstöð við
þjóðveg eitt.
Skrifstofa og bátahús Hestasports - Ævintýraferða
er í göngu fjarlægð frá sumarhúsunum og
ekki langt frá Varmahlíð er einnig aðstaða okkar fyrir stuttar
hestaferðir og dagsferðir.
Viðtæk alhliða ferðaþjónusta er í boði
í Varmahlíð: tjaldstæði, sundlaug, hótel,
verslun, bensínstæði, banki og
upplýsingamiðstöð ferðamanna og fleira.
Með stórbættum samgöngum er Varmahlíð nú
áningarstaður nr. 1 norðanlands með óendanlega
möguleika til útiveru og afþreyingar við allra hæfi.