Hestasport - Ævintýraferðir
Upplýsingar: info@activitytours.is Bátaferðir með Ævintýraferðum

Fréttir:
Heim
Prenta síðu



3-ja daga ævintýri


"Lygileg" tveggja daga raft-sigling á Austari Jökulsá. Siglt er eftir ánni þar sem hún fellur um hálendið norður af Laugarfelli á Sprengisandi niður í Austurdal og áfram um gljúfrin í Villinganes. Hvor dagleið er um 25 km. og óhætt að fullyrða að flottari "World Class" líkamsrækt, hópefli, náttúruskoðun og og og… er vand fundin.

Nokkur ummæli að loknum ferðum:

"Það finnst ekkert sambærilegt í Evrópu !"
"Íslendingar vita ekki hvað þeir eiga flott !"
"Þegar hvítfextar flúðir ná lengra en augað eygir…þá !"
"Ég á ekki orð til að lýsa þessu ævintýri !"

Aldurstakmark er 18 ára og gerð er krafa um gott líkamlegt atgervi þáttakanda. Einhver reynsla af raft-siglingum æskileg.
Lengd ferðar 3 dagar, 2 nætur
Brottfarir alla þriðjudaga frá lok júní til loks ágústs eftir fyrirspurn (min. 4 þátttakenda).
Flokkun ferðar

Flokkur III - IV+

Erfitt / mjög erfitt
Langar og ólgumiklar flúðir, kraftmiklar öldur og holur. Margar hindrandir sem krefjast nákvæmni í bátastjórn. Ölduhæð allt að 1,8 m , skessukatlar og hætturlegir steinar og iður.
Upplýsingar um alþjóðlega staðla á hættumati á ám.

Undirbúningur

Hafið meðferðis léttan, hlýjan og lagskiptan ullar- eða flísfatnað, tvenn pör af hlýjum nærfötum (ullarnærfötum) og hlýja sokka. Þunna húfu undir hjálminn, svefnpoka, sundföt og handklæði og létta skó.
Frá Laugarfelli flytjum við farangur og matvæli til tveggja daga með okkur í bátunum. Veljið því farangur vel. Ónauðsynlegan búnað er hægt að senda til baka í bátahúsið með bílnum sem flytur hópinn í Laugarfell.

Vinsamlegast lestu almennar upplýsingarnar.

Ferðalýsing
1. dagur: Varmahlíð - Laugarfell
Þátttakendur koma í bátahús um kl. 13:00. Þegar tryggt er að allir hafi nauðsynlegan búnað meðferðis er ekið um Vesturdal og Sprengisand í Laugarfell. Gist í upphituðum og góðum skála Ferðafélags Akureyrar. Tekur ferðin 3 - 4 tíma Eftir kvöldverð er notalegt að fara í laugina og safna kröftum fyrir næsta dag.
2. dagur: Laugarfell - Hildarsel
Eftir morgunverð er ekið að Jökulsánni en hún fellur um hraunið skammt frá Laugarfelli. Siglingin hefst í hægum straumi en brátt fellur áin um gljúfur og þrengingar og fyrir stafni hvítfextar flúðir og stórgrýti svo langt sem augað eygir. Niður í dalnum fellur áin lygnari og fyrr en varir blasir við ágætur skáli Ferðafélags Skagfirðinga í Hildarseli þar sem við gistum og njótum kvöldsins í faðmi fjallanna.
3. dagur: Hildarsel - Villinganes - Varmahlíð
Þegar leiðangursmenn eru ferðbúnir er ýtt á flot. Hér gefst gott tækifæri til að njóta þess sem fyrir augu ber og rifja upp áratökin. Vatnsmiklir lækir og þverár falla í Jökulsána á leiðinni frá Laugarfelli, því vex vatnsmagn árinnar eftir því sem líður á ferðina. Siglingin um gljúfur Austurdals er afar tilkomumikil og spennandi þar sem stórar flúðir reyna á samhæfingu áhafna. Við Villinganes eru bátar og búnaður tekinn upp og ekið í Varmahlíð þar sem ferðinni lýkur með slökun í sundlauginni og grillveislu á góðum stað.

Verð: EUR 450,-

Innifalið í verði er:
  • Akstur.
  • Fullt fæði, hefst með kvöldverði á fyrsta degi og lýkur með grillveislu á þriðja degi.
  • Gisting í svefnpokapláss í tvær nætur í fjallaskálum.
  • Afnot af þurrgalla, björgunarvesti, hjálmi, skóm og neoprene hönskum.
  • Fylgd þaulreyndra leiðsögumanna og ræðara á öryggiskayak.
Hafðu samband til að bóka

Myndir
Online: 1 Today: 2 Yesterday: 6 Record: 100 Total: 8891